X-D

Sjálfstæðisflokkurinn Á morgun ganga Íslendingar til kosninga og samkvæmt skoðanakönnunum virðast landsmenn ætla að kjósa sér eitt stykki vinstri stjórn.

Gott og vel, það er að mörgu leyti skiljanlegt að einhverjir vilji refsa Sjálfstæðisflokknum fyrir mistök síðustu ára og flokkurinn þarf auðvitað að taka því. Það er ekki nóg að vera í ríkisstjórn, menn þurfa líka að sýna forystu. En látum það nægja í bili.

Svona er málum háttað:

Sjálfstæðisflokkurinn gerði mikið af mistökum á síðustu árum en helda mein hans var forystuleysi. Ég hef hins vegar mikla trú á Bjarna Benediktssyni sem formanni og tel hann vel til þess fallinn að leiða flokkinn á næstu árum – hvernig sem kosningarnar fara.

Það er ljós að ungt fólk hefur ekki þurft að hafa miklar áhyggjur í lífinu. Það mun þó breytast með áframhaldandi vinstri stjórn en kannski verður þetta góður skóli fyrir ungu kynslóðina, dýr skóli, en mögulega góður skóli að þurfa að upplifa vinstri stjórn.

Sú vinstri stjórn sem mögulega kann að taka við völdum eftir kosningar er ekki eins hefðbundnar vinstri stjórnir hingað til. Ljóst er að forystumenn bæði VG og Samfylkingarinnar eru harðir sósíalistar og munu færa landið í þá átt. Hér mun kaupmáttur halda áfram að rýrna, skatttekjur ríkisins munu lækka (jafnvel þótt skattar verði hækkaðir), opinber útgjöld munu aukast og líklega verður stór hluti þeirra í óarðbær verkefni.

Nú berja vinstri menn í borðið og segja að Sjálfstæðisflokkurinn „hafi komið okkur í þessa stöðu“ eins og maður heyrir svo oft. Gott og vel, ég sagði áðan að flokkurinn hefði gert mikið af mistökum og jú, hann er vissulega einhverja sök, en ábyrgðin hlýtur þó fyrst og fremst að liggja hjá stjórnendum bankanna sem hrundu. En gefum okkur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið okkur í þessa stöðu, gefur það ástæðu til að sökkva landinu enn dýpra?

Það er nauðsynlegt að koma atvinnulífinu í gang á ný. Það er nauðsynlegt að hækka ekki skatta því heimilin í landinu mega ekki við því – í raun væri ráð að lækka skatta frekar en hitt. Það er nauðsynlegt að taka til í ríkisrekstrinum og skera niður ríkisútgjöld. Enginn flokkur getu gert þetta allt nema Sjálfstæðisflokkurinn!

mbl.is Samfylkingin enn stærst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Gisli Freyr Valdórsson
Gisli Freyr Valdórsson

Hér er skrifað um stjórnmál og önnur þjóðfélagsmál en höfundur á það til að fjalla um þau frá hægri væng stjórnmálanna. Ekkert er síðunni þó óviðkomandi.

Þeir sem vilja ná sambandi við mig er bent á netfangið gislifreyr@simnet.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband